Strandsvæðisskipulag á Vestfjörðum
Strandsvæðisskipulag er skipulagsáætlun fyrir afmarkað svæði á fjörðum og flóum utan staðarmarka sveitarfélaga þar sem sett er fram stefna og ákvarðanir stjórnvalda um framtíðarnýtingu og vernd svæðisins.
Strandsvæðisskipulag Vestfjarða var staðfest af ráðherra í mars 2023 og tók gildi við birtingu þess í B-deild stjórnartíðinda. Hér má kynna sér ferlið að baki skipulagsgerðinni og nálgast gögn sem urðu til við vinnuna.
Skipulagssvæði strandsvæðisskipulags Vestfjarða nær yfir firði og flóa frá Bjargtöngum í suðri og að Straumnesi í norðri. Mörk skipulagssvæðisins til lands eru við netlög, 115 m út frá stórstraumsfjöruborði, en staðarmörk sveitarfélaga miðast við netlög. Til hafs nær skipulagssvæðið að viðmiðunarlínu sem skilgreind er í lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, en hún fylgir í öllum aðalatriðum grunnlínu landhelginnar. Að skipulagssvæðinu liggja sex sveitarfélög: Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppur, Ísafjarðarbær, Bolungarvíkurkaupstaður, Súðavíkurhreppur og Strandabyggð.