Stafrænt strandsvæðisskipulag
Strandsvæðisskipulag Vestfjarða var unnið á stafrænu formi eins og kveðið er á um í lögum um skipulag haf- og strandsvæða.
Skoða má stafrænan
skipulagsuppdrátt í vefsjá, þar má finna þau ákvæði sem gilda um einstaka reiti
og lýsingu á aðstæðum innan hvers reits. Túlkun á legu og afmörkun reita miðast við hvað greina
má við lestur á útprentuðum skipulagsuppdrætti í mælikvarðanum 1:100.000.
Hér má skoða strandsvæðisskipulag Vestfjarða í vefsjá.
Skipulagsstofnun hefur gefið út gagnalýsingu sem lýsir tilhögun gagna og innihaldi stafræns strandsvæðisskipulags. Er henni ætlað að samræma gögnin og auðvelda notkun þeirra og túlkun.
Gögn stafræns strandsvæðisskipulags eru öllum opin og er hægt að nálgast gögnin í gegnum lýsigagnagátt LMÍ